BBC notaði leigubílstjóra sem netsérfræðing

Leigubílstjórinn beið í andyri sjónvarpsstöðvarinnar eftir að fá greitt fyrir túrinn þegar skyndilega drífur að fólk og setur á hann hljóðnema og vísar til sætis í myndveri.

„Guy Kewney er ritstjóri tækniritsins ‘News Wireless‘,“ segir þulurinn og leigubílstjórinn verður forviða á svipinn.  Svo hefst spurningaflóðið og leigubílstjóranum tekst bara ágætlega að feika sig í gegn um viðtalið.

Færðu inn athugasemd